
Tugir listamanna munu skemmta gestum og gangandi á Þorláksmessu í miðborginni. Einstaka dagskrárliði má sjá hér að neðan.
Mikill fjöldi skemmtikrafta, jólasveina og vætta verður á ferðinni í miðborginni næstu daga. Kórar, blásarar, jólasveinar og vættir munu stytta fólki stundir víðs vegar í 101. Unghljómsveitin White Signal mun m.a. verða á ferðinni á bílpalli og leggur upp frá Gömlu höfninni frá kl. 13:30 , en þessi sveit hefur hvarvetna vakið mikla athygli enda hljómsveitarfólkið á aldrinum 14 - 16 ára og afar langt komið í bæði tónsmíðum, hljoðfæraleik og söng.
Samstaða rekstraraðila á Skólavörðustíg er öðrum til eftirbreytni. Árlega halda þeir bæði glæsilegan Blómadag og svo að hausti er Stóri kjötsúpudagurinn orðinn að föstum punkti á Skólavörðustíg. Þá er borgarbúum boðið á svæðið að gæða sér á kjötsúpu sem fremstu kokkar landsins framleiða og framreiða auk þess sem lifandi tónlist og stemning hljómar um alla götuna, sem er jafnframt ein best heppnaða gata borgarinnar, ekki síst eftir nýlegar endurbætur sem færði götunni aðlaðandi vistgötubrag.
Sumsé; Allir á Skólavörðustíg um helgina að njóta einstaks miðborgarlífs sem vísast mun smitast um öll svæði miðborgarinnar þennan dag. Vígorð götunnar á hér vel við: Skólavörðustígurinn - alltaf brattur !
Sumsé; Allir á Skólavörðustíg um helgina að njóta einstaks miðborgarlífs sem vísast mun smitast um öll svæði miðborgarinnar þennan dag. Vígorð götunnar á hér vel við: Skólavörðustígurinn - alltaf brattur !
Um miðjan október munu þúsundir erlendra tónlistarunnenda sækja miðborgina heim, en þá hefst hin rómaða tónlistarhátíð Iceland Airwaves.
Hápunktur Jazzhátíðar í Reykjavík eru stórtónleikar Mezzoforte í Eldborg Hörpunnar
Hundruðir þúsunda munu heimsækja miðborgina á næstu vikum. Það er okkar að leggjast á eitt við fegrun og hreinsun á tímum niðurskurðar.
Átakið er kærkomið öllum sem láta sig varða nærumhverfi sitt
Hestadagar eru fyrirhugaðir í Reykjavík í lok mars . Hápunkturinn verður mikil skrautreið UPP Laugaveginn milli kl. 12:15 og 13:00 og verður Laugaveginum lokað á meðan. Það má ætla að mikill mannfjöldi leggi leið sína í miðborgina til að fylgjast með þessari óvenjulegu uppákomu og aldrei að vita nema eitthvað þjóðlegt verði til skemmtunar í kjölfarið, enda væntanlegt vor í lofti á þessum langa laugardegi.
Fornbílar, harmonikkuleikarar og fjallkona verða meðal þess sem fyrir augu mun bera þennan dag í miðborginni
Fornbílar, harmonikkuleikarar og fjallkona verða meðal þess sem fyrir augu mun bera þennan dag í miðborginni
Hönnunarmars speglar það besta í íslenskri hönnun. Hápunktuirnn er tískusýning 31.mars.
Myrkir og merkir dagar eru framundan, dagar skapandi greina og listamanna margra landa.
Kók-lestin hefur glatt augu og eyru Reykvíkinga í 15 ár. Að þessu sinni komust færri kók-trukkar að Laugaveginum en vildu.
Kakóstöðvar verða víðs vegar um borgina á aðventunni , hér eftir sem hingað til. Það er Reykjavíkurdeild Rauða krossins sem hér eftir sem hingað til mannar stöðvarnar og stendur fyrir söfnunum í þágu góðra mála.



