
Jólamarkaðurinn Ingólfstorgi skartar Tenórunum þremur kl. 21 á Þorláksmessu
Af þeim fjölmörgu viðburðum sem boðið er upp á i miðborginni á Þorláksmessu ber einn sýnu hæst á ári hverju , en það er framkoma Tenóranna þriggja; Jóhanns Páls Friðgeirssonar, Gissurar Páls Gissurarsonar og Gunnars Guðbjörnssonar. Hinn fjölhæfi djassvirtúós Reynir Sigurðsson mun leika á Jólamarkaðnum frá kl. 20:00 ásamt tríói sínu áður en Tenórarnir þrír stíga fram á svalir gömlu Hótel Víkur og flytja sína árlegu dagskrá við undirleik píanóleikarans Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur .
Sjá nánar um dagskrá á Viðburðir hér á heimasíðunni.


