Það vekur athygli jafnt innlendra sem erlendra viðskiptavina í miðborginni hver glæsilegt vöruúrvalið er og ekki síður hve sanngjörn verð eru í boði. Umtalsverðrar fjölgunar útlendinga hefur orðið vart í miðborginni að undanförnu og má vafalítið rekja það til þeirra glæstu herferðar sem Inspired by Iceland er, en það átak hófst að nýju síðla árs 2011.


Lauflétt og brosandi útsölustemning verður áberandi í miðborginni á næsta Langa laugardegi, 7.janúar. Eftir góða jólatíð ætla miðborgarkaupmnenn að bjóða gestum og gangandi ríflega afslætti af varningi sínum og mun þar ýmislegt girnilegt á boðstólum nánast á gjafvirði. Lifandi tónlist verður flutt af verðlaunasveitinni White Signal sem verður á faraldsfæti og leggur upp frá Gömlu höfninni kl. 13:30 og stefnir með reglubundnum stoppum til spilamennsku að Hlemmi og Hallgrímskirkju! Það er góð spá fyrir laugardaginn og því tilvalið að rölta í bæinn, njóta veitinga, dásemda og þess að versla á góðum kjörum. Hittumst heil!


Svo virðist sem jólaverslun hafi lítið breyst milli ára þrátt fyrir að heimilin í landinu hafi skv. könnunum Hagstofu skorið niður útgjöld um 17% frá árinu 2008. Almennt er gott hljóð í kaupmönnum og veitingamönnum í miðborginni og fyrir mörgum var t.a.m. nýafstaðin Þorláksmessa sú veltuhæsta um áraraðir. Útsölur eru að hefjast og nðurstöður ársins verða ljósari upp úr áramótum. Síðustu dagar fyrir jól eru öllu jöfnu þeir stærstu á ári hverju og ljóst að þar hefur margumrædd efnahagskreppa sem frestað var frá síðastliðnu ári yfir á árið 2011 litlu um breytt.


Tenórarnir þrír verða meðal þeirra sem koma fram á veglegri viðburðavöku í miðborginni á Þorláksmessu. Þeir koma fram við Jólamarkaðnum Ingólfstorgi kl. 21 á svölum gömlu Hótel Víkur.
Kórar, lúðrasveitir, hljómsveitir, bassajólasveinnin Jakob Smári Magnússon, Bjarni töframaður, margir jólasveinar og fjölmargir skemmtikraftar munu prýða götur miðborgarinnar á þessum stærsta verslunar- og upplifunardegi aðventunnar .

Ráðgert er að loka fyrir bílaumferð á Laugavegi og Skólavörðustíg frá kl. 12:00 á hádegi. Hefðbundin friðarganga hefst kl. 18:00. Mál manna er að miðborgin hafi ekki í annan tíma verið jafn glæst og aðlaðandi, enda miklu til tjaldað í skreytingum, fegrun og viðburðahaldi.

Svartir hringlaga límmiðar í 7 verslunum á 7 svæðum miðborgarinnar tákna að hægt er að fá afhent \"Jóla\" kort fyrir sérstakan Jólaleik miðborgarinnar og færa inn 7 staðsetningar á 7 jólavættum frá Kvos að Hlemmi og Hallgrímskirkju að Kvos. Umræddum kortum er síðan skilað inn og dregið úr réttum svörum. 3 Vinningar eru í boði: Gjafakort miðborgarinnar okkar að upphæð kr. 25.000, kr. 15.000 og kr. 10.000.-
Umræddar jólavættir eru teiknaðar af Gunari Karlssyni myndlistarmanni og varpað á ýmsa veggi og gafla. Galdurinn er sumsé að finna þá veggi og gafla - og það fyrir jól !


Mikið verður um að vera um helgina í miðborginni. Töframaðurinn Bjarni er jólaveislustjóri í Jólaþorpinu á Ingólfstorgi og um alla miðborgina munu kórar, hljómsveitir, jólasveinar og skemmtikraftar halda uppi stanslausri stemningu fram á kvöld. Jólaleikur miðborgarinnar getur leitt til veglegra verðlauna. Kort til þátttöku eru fáanleg í mörgum sérmerktum verslunum. Dagskráin er sem hér segir að neðan:

Frá og með fimmtudeginum 15.desember verða verslanir í miðborginni opnar frá kl. 10:00 - 22:00 og Jólamarkaðurinn Ingólfstorgi frá kl. 14:00 - 20:00. Sunnudagurinn 18.desember verður opinn frá kl. 13:00 - 22:00. Verði veður hagstæð og fjöldi í bænum er næsta víst að opnunartímar munu lengjast. Þá verður opið til kl. 23:00 á Þorláksmessu og í verslunum milli kl. 10:00 og 12:00 á aðfangadag en Jólamarkaðnum á Ingólfstorgi lýkur á Þorláksmessukvöldinu kl. 23:00.

Mikið viðburðahald er framundan í miðborginni. Því er ljóst að mikill fjöldi mun leggja leið sína í 101 næstu daga og vikur.


Laugardagarnir verða æði skrautlegir og fjörugir í miðborginni fram að jólum. Ratleikur Litlu jólabúðarinnar, Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi, leitin að myndvörpu-vættunum, gömlu íslensku jólasveinarnir, harmonikkuleikur við Geysi á Skólavörðustíg, Bassajól Jakobs Smára, lúðrasveitir og kórar eru meðal þess sem í boði verður auk þekktra skemmtikrafta sem krydda upp á jólatilveruna.
Margir leggja leið sína í miðborgina á þessum árstíma og vert að hafa í huga hin fjölmörgu bílahús og bílastæði sem í boði eru áð Stjörnuporti, Vitatorgi, Traðarkoti Hverfisgötu, Bergstaðastræti við Skólavörðustíg, Vesturgötu við Mjóstræti auk allra stæðanna vipð Tollstjórahúsið og víðar.
Jón Gnarr borgarstjóri opnar Jólamarkaðinn á Ingólfstorgi kl. 16 fimmtudaginn 8.desember.
Jafnframt verða viðurkenningar veittar fyrir Jólaglugga miðborgarinnar 2011.
Lúðrasveitin Svanur leikur og Stúlknakór Kársness syngur við opnunina.
Hinn árlegi ratleikur Litlu jólabúðarinnar hefst laugardaginn 10.desember. Leikurinn er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna og ber að skila niðurstöðum fyrir 20.desember n.k. Þrír vinningar verða síðan afhentir á aðfangadagsmorgun. Sjá nánar hér að neðan.
Ákveðið hefur verið að veita þrjár viðurkenningar fyrir fallegustu og frumlegustu jólagluggana í miðborginni 2011. Dómnefnd safnar tilnefningum til hádegis miðvikudaginn 7.desember og við opnun Jólamarkaðirns á Ingólfstorgi kl. 16:00 fimmtudaginn 8.desember. verða viðurkenningarnar veittar. Það er Jón Gnarr borgarstjóri sem opnar Jólamarkaðinn formlega þennan dag með lúðrablæstri og söng.
Myndvörpun jólavætta og snjókomu á valda veggi miðborgarinnar hefur vakið mikla hrifningu fólks, en það er teiknarinn snjalli Gunnar Karlsson sem teiknaði þær frábæru hreyfðu þrívíddarmyndir sem gleðja augu fólks á öllum aldri um þessar mundir. Þá hafa sérsmíðaðar jólabjöllur í gömlum stíl vakið athygli ásamt hinum aukna fjölda jólaljósa og skreytinga sem gera miðborgina nú hátíðlegri en nokkru sinni fyrr. Og ekki skemmir blessaður snjórinn fyrir :)
Langt er um liðið síðan fjárfest var í nýjum skreytingum og jólalýsingu á höfuðborgarsvæðinu en gerð hefur verið bragarbót á og senn munu nýjar jólaseríur birtast víða um borgina auk sérsmíðaðra jólabjalla er hengdar verða yfir helstu götur. Þá hefur hönnuðurinn Hafsteinn Júlíusson verið fenginn ásamt Gunnari Karlssyni myndlistarmanni til að útbúa sérstakar jólavættir sem verður varpað á veggi í miðborginni með eilítllli hreyfingu. Þetta eru hálftröllin Grýla og Leppalúði, jólakötturinn , Hurðaskellir, Stúfur, Bjúgnakrækir og Stekkjastaur. Hvert hinna sjö svæða miðborgarinnar fær sína vætt upp á vegg auk snjókomu sem varpað verður á nokkra húsgafla.
Þá er undirbúningur Jólamarkaðarins á Ingólfstorgi langt kominn auk viðburðahalds sem ætlað er að gleðja jólabörn á öllum aldri á aðventunni í miðborg Reykjavíkur.

Þúsundir Islendinga sóttu glæsilegan nýjan Skemmtigarð í Smáralind á nýafstaðinni opnunarhelgi. Kringlan skartar einnig fyrirtaks leikaðstöðu með barnagæslu sem gerir foreldrum kleift að versla og njóta á meðan börnin fá útrás í skemmtilegu umhverfi. Það eru börnin sem oft ráða því hvert för er heitið til innkaupa.

Það vantar aðstöðu sem þessa í miðborginni. Fjárfesting í búnaði þarf ekki endilega að vera svo stór , mikilvægast er að ábyrgt og gott fólk reki og manni staðinn. Þetta er viðskiptahugmynd sem vonandi verður hrint í framkvæmd fyrr en seinna.